Author: raggi
Ólafur Stephensen amtmaður ritar greinargerð þar sem hann ræðir ýmsar viðreisnarhugmyndir [án dags. 1771]. Lit. JJ.
Brynjólfur Sigurðsson sýslumaður svarar helstu spurningum Landsnefndarinnar 28.1.1771. Lit. HH. N° 2.
Brynjólfur Sigurðsson sýslumaður skrifar um kornmölun, kornrækt, laxveiðar og fleira 28.2.1771. Lit. HH. N° 1.
Bjarni Pálsson landlæknir skrifar um meðul gegn fjárpestinni 14.3.1771. Lit. GG.
Björn Markússon lögmaður skrifar um fátækramálin á Íslandi [án dags. 1771]. Lit. FF. N° 2.
Björn Markússon lögmaður fjallar um spítalana á Íslandi [án dags. 1771]. Lit. FF. N° 1.
Björn Jónsson lyfsali skrifar um akuryrkju á Íslandi 12.3.1771. Lit. EE.
Séra Guðlaugur Sveinsson á Kirkjubóli sendir ritgerð sem hann nefnir „Um garðlag“ 30.11.1770. Lit. DD.
Hreppstjórar og bændur á Álftanesi kvarta yfir versluninni í Hafnarfirði 1.2.1771. Lit. CC.
Magnús Ketilsson sýslumaður ritar greinargerð um viðreisn Íslands [án dags. 1771]. Lit. BB.
Ólafur Jónsson og Bjarni Guðbrandsson, hreppstjórar í Miðfirði, rita greinargerð sem þeir nefna „Íslands skaði og viðrétting“ [án dags. 1771]. Lit. AA. N° 2.
Einar Magnússon, umboðsmaður Miðfjarðarjarða, ritar álitsgerð um viðreisn landsins [án dags. 1771]. Lit. AA. N° 1.
Útdráttur úr greinargerð lit. JJ frá Ólafi Stephensen amtmanni um fólksfjölda á Íslandi á 18. öld [án dags. 1771]. Lit. Z. N° 2.
Ólafur Stephensen amtmaður áréttar skoðanir sínar um róðraskyldu hjáleigumanna 21.2.1771. Lit. Z. N° 1.
Séra Árni Þórarinsson á Lambastöðum ritar álitsgerð um hérað sitt 12.2.1771. Lit. Y.
Séra Eiríkur Guðmundsson á Stað í Hrútafirði skrifar um verslun og atvinnu 20.12.1770. Lit. X. N° 2.
Skrá yfir fædda og dána í Seltjarnarnesþingum 1760–1769 frá séra Árna Þórarinssyni 28.1.1771. Lit. X. N° 1.
Séra Vigfús Jónsson í Miklaholti skrifar um húsaga og hreppstjórn ásamt fleiru 31.1.1771. Lit. V.
Jón Ólafsson varalögmaður ritar álitsgerð um hag landsins og ráð til úrbóta 23.11.1770. Lit. U.
Bjarni Högnason, bóndi á Tjörnum við Eyjafjöll, sendir tillögur til viðreisnar landinu 3.12.1770. Lit. T. N° 2.
Óundirrituð álitsgerð um húsaga, brúðkaup og jarðarfarir ásamt fleiru [án dags.] 1770. Lit. T. N° 1.
Sveinn Sölvason lögmaður ritar álitsgerð um hag landsins, skatta og leigukúgildi 2.10.1770. Lit. S. N° 2.
Sveinn Sölvason lögmaður skrifar um landsaga, efnahagslíf, réttarfar og fleira 2.10.1770. Lit. S. N° 1.
Björn Markússon lögmaður ritar álitsgerð um tíundargreiðslur 5.1.1771. Lit. R. [N° 2].
Björn Markússon lögmaður fjallar um skiptingu landsins í tvö ömt 5.1.1771. Lit. R. [N° 1].
Ólafur Stephensen amtmaður skrifar um róðraskyldu hjáleigumanna 7.2.1771. Lit. Q.
Bjarni Halldórsson sýslumaður skrifar um fólksfjölda, byggingu eyðijarða og fjárpestina 30.10.1770. Lit. P. N° 4.
Bjarni Halldórsson sýslumaður skrifar um fiskveiðar í sjó og lax- og silungsveiði í ám og vötnum 30.10.1770. Lit. P. N° 3.
Bjarni Halldórsson sýslumaður skrifar um fiskveiðar og lausamenn 30.10.1770. Lit. P. N° 2.
Bjarni Halldórsson sýslumaður skrifar um verslun, úthafnir, sölu konungsjarða og fleira 30.10.1770. Lit. P. N° 1.
Skrá yfir fædda og dána í Garða- og Bessastaðasóknum 1761–1770 frá séra Guðlaugi Þorgeirssyni í Görðum 23.1.1771. Lit. O.
Greinargerð um jarðeignir konungs á Íslandi árið 1770 tekin saman af Skúla Magnússyni landfógeta [án dags. 1770/1771]. Lit. N.
Franz Illugason fyrrverandi vefari við Innréttingarnar lýsir aðstæðum sínum 10.1.1771. Lit. M. N° 2.
Fyrrverandi handverksmenn við Innréttingarnar skýra frá bágindum sínum 7.1.1771. Lit. M. N° 1.
Bændur og hjáleigumenn á Akranesi skrifa um mannslán 11.10.1770. Lit. L.
Björn Markússon lögmaður ritar greinargerð um réttarfar, almennar endurbætur á hag landsins og skiptingu þess í tvö ömt 23.12.1770. Lit. K.
Dönsk þýðing bréfa lit. J. N° 1–2.
Séra Guðlaugur Sveinsson á Kirkjubóli skrifar um aga vinnuhjúa 11.10.1770. Lit. J. N° 2.
Séra Guðlaugur Sveinsson á Kirkjubóli gerir grein fyrir höfnum í nyrðri hluta Ísafjarðarsýslu 10.10.1770. Lit. J. N° 1.
Þorsteinn Magnússon sýslumaður fjallar um leiðir til viðreisnar landinu 12.11.1770. Lit. H.
Greinargerð þar sem Finnur biskup svarar öllum greinum erindisbréfs Landsnefndarinnar [án dags. 1770]. Lit. G. N° 2.
Finnur Jónsson biskup ritar greinargerð um hnignandi hag kirkju og kennimanna 20.11.1770. Lit. G. N° 1.
Séra Halldór Finnsson og séra Jón Teitsson í Gaulverjabæ skrifa um bjargræðisvegina 9.11.1770. Lit. F.
Sveinn Sölvason lögmaður fjallar um skiptingu landsins í tvö ömt 8.9.1770. Lit. E.
Manntalstafla yfir Hólastifti 1769 frá Gísla Magnússyni biskupi 17.8.1770. Lit. D. [N° 2].
Manntalstafla yfir Skálholtsstifti 1769 frá Finni Jónssyni biskupi [án dags. 1770]. Lit. D. [N° 1].
Gerðabók embættismannafundar á Alþingi 20.7.1770 (deliberations protocol). Lit. C.
Bréfabók Landsnefndarinnar fyrri 1770–1771. Lit. B. N° 1–50.
Útdráttur úr bréfi frá „Directeurerne for det Islandske Compagnie“ um siglingu erlendra skipa inn á Ísafjörð 16.5.1770. Lit. A. N° 11.
Afrit af bréfi Jóns Ólafssonar varalögmanns til rentukammers varðandi fjárpestina 25.11.1769. Lit. A. N° 10.
Afrit af bréfi Rosenkrantz og fleiri manna hjá Almenna verslunarfélaginu til rentukammers gegn tillögum Ólafs Stephensens um minni brennivínsinnflutning 22.11.1769. Lit. A. N° 9.
Afrit af bréfi Prøcks stiftamtmanns til rentukammers um að dregið verði úr innflutningi á brennivíni 30.9.1769. Lit. A. N° 8.
Afrit af bréfi Ólafs Stephensens amtmanns til rentukammers um siglingu erlendra skipa hér við land 5.9.1769. Lit. A. N° 7.
Afrit af bréfi Ólafs Stephensens amtmanns til stiftamtmanns um brennivínsinnflutning og ofnotkun þess 7.8.1769. Lit. A. N° 6.
Afrit af bréfi Jóns Grímssonar garðyrkjumanns til rentukammers um ferðir hans á Íslandi og launamál hans 27.7.1769. Lit. A. N° 5.
Útdráttur úr bréfi Hermans Aystrups kaupmanns til Ólafs Stephensens amtmanns um fiskveiðar erlendra þjóða fyrir Vestfjörðum 30.6.1769. Lit. A. N° 4.
Afrit af bréfi Dines Jespersens kaupmanns til Ólafs Stephensens amtmanns um fiskveiðar Íslendinga og erlendra þjóða við Ísland 5.6.1769. Lit. A. N° 3.
Útdráttur úr athugasemdum við reikninga Jarðabókarsjóðs fyrir árið 1765 um hákarlaveiðar ásamt bréfi Ólafs Stephensens amtmanns um veiðarnar 24.8.1768. Lit. A. N° 2.
Verslunartillögur Skúla Magnússonar landfógeta frá 1767 ásamt minnisblaði um sama 3.3.1770. Lit. A. N° 1.
Kaupmannahöfn
Thomas Windekilde og Þorkell Fjeldsted komu til Kaupmannahafnar 12. september. Nefndin hélt áfram vinnu við úrvinnslu gagna sem safnast höfðu í ferðinni til Íslands.
Arendal í Noregi
Eftir 17 daga siglingu tók skip landsnefndarmanna höfn í Arendal í Noregi. Þar fór Andreas Holt í land og fór landleiðina til Kaupmannahafnar.
Hólmshöfn við Reykjavík
Skipið sem Landsnefndin sigldi með lagði úr höfn við Reykjavík 15. ágúst 1771. Þá höfðu þeir dvalið í landinu í rúmt ár.
Arnarhóll í Reykjavík
30. júlí héldu nefndarmenn uppboð á hestum sínum og öðrum eigum og fóru að huga að brottför til Danmerkur.
Skálholt
Að loknu Alþingi héldu nefndarmenn í Skálholt til fundar við biskup.
Alþingi á Þingvöllum
Að ferð lokinni hitti Þorkell samnefndarmenn sína á Þingvöllum þar sem Alþingi stóð yfir.
Reykjanes við Ísafjarðardjúp.
Þorkell Fjeldsted kannaði hverasvæðið á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Hann gisti m.a. á Kirkjubóli
Reykhólar í Barðastrandarsýslu
Þorkell Fjeldsted hélt för áfram og rannsakaði möguleika á saltvinnslu á Reykhólum. Á leiðinni gisti hann m.a. á Ljárskógum við Hvammsfjörð.
Leirá í Borgarfirði
Þegar komið var í Borgarfjörð kenndi Windekilde sér meins og hætti við Vestfjarðaför.
Arnarhóll í Reykjavík
Vestfjarðaferð undirbúin. Vegna veikinda varð Andreas Holt eftir.
Krýsuvík og Eyrarbakki
Sumarið byrjaði með leiðangri til Krýsuvíkur og Eyrarbakka, með viðkomu á Hrauni í Ölfusi.
Eyrarbakki
Á haustdögum skruppu nefndarmenn til Eyrarbakka, en þar hafði Windekilde áður verið kaupmaður.
Arnarhóll í Reykjavík
Veturseta við störf á Arnarhóli í Reykjavík.
Arnarhóll í Reykjavík
Í lok ágúst voru þeir komnir til Reykjavíkur á ný og höfðu vegna slæms veðurs þurft að hætta við að heimsækja nokkra staði.
Kalmanstunga í Borgarfirði
Aftur lögðu nefndarmenn á Arnarvatnsheiðina og gistu á ný í Kalmanstungu á suðurleiðinni.
Grímstunga í Vatnsdal
Nefndin tók hús á Grímstungubændum. Síðar bárust allmörg bréf úr Vatnsdal, svo heimsókn nefndarinnar hefur haft áhrif.
Þingeyrar
Fyrsti gististaður á suðurleið var á Þingeyrum hjá Bjarna Halldórssyni sýslumanni.
Hólar í Hjaltadal
Nefndarmenn söfnuðust saman á Hólum aftur áður en haldið var suður á ný.
Hólar í Hjaltadal
Eyjólfur Jónsson, ritari nefndarinnar, varð eftir á Hólum við stjörnuskoðun 3.-17. ágúst, á meðan leiðangursmenn héldu lengra norður.
Ólafsfjörður og Siglufjörður
Þorkell Fjeldsted fór áfram einn síns liðs til Ólafsfjarðar og Siglufjarðar.
Akureyri
Leiðir skildi í Skagafirði og Andreas Holt og Thomas Windekilde fóru til Eyjafjarðar. Þeir gistu m.a. á Silfrastöðum í Skagafirði, á Bakka í Öxnadal og Myrká í Hörgárdal.
Mælifell í Skagafirði
Fóru erfiða ferð yfir Arnarvatnsheiði og Stórasand.
Kalmanstunga í Borgarfirði
Fyrsti gististaður nefndarmanna á leið þeirra norður í land.
Þingvellir
Nefndarmenn dvöldu á Alþingi á Þingvöllum 13. júlí til 30. júlí. Þar kynntust þeir flestum embættismönnum landsins og héldu gestaboð.
Arnarhóll
Nefndarmenn dvelja á Arnarhóli í Reykjavík 27. júní til 13. júlí. Þaðan rituðu þeir embættismönnum landsins bréf.
Hafnarfjörður
Nefndarmenn taka land í Hafnarfirði 27. júní. Í för með þeim var nýr stiftamtmaður yfir Íslandi, Lauritz Thodal.
Nýhöfn
Nefndarmenn leggja af stað frá Kaupmannahöfn 31. maí í fjögurra vikna siglingu.
Kaupmannahöfn
Erindisbréf var gefið út 22. maí, þar sem tilgreind eru fjölmörg mál sem nefndin átti að taka til skoðunar.